mánudagur, febrúar 06, 2006

Söguhugmynd #2

Reyfarafílingur, svona nokkurnvegin í líkingu við Pulp Fiction (for lack of a better comparison), þar sem nokkrar smásögur, mismunandi stílfærðar, tengjast saman á einhvern hátt. Mundi byrja á bílaferðalagi tveggja ungra smákrimma um suðurlandið, fylgst með þeirra ferðalagi, lýst landslaginu, hvað þeir spjalla um, drekka, dópa, ríða á ýmsum litlum stöðum, er þeir eru komnir framhjá Skaftafelli um hánótt og eru töluvert sveppaðir, springur dekk. Einhver hefur sett gadda á veginn. Bóndi kemur þim til bjargar, býður þeim heim til sín og kemur í ljós að þessi bóndi er bara nokkuð hress fjandi og vitur, vel lesinn, orðheppinn og nýtur þess að fá sér jónu og jafnvel sveppi stöku sinnum. Hann drepur þá eftir nokkra tíma af spjalli og skemmtun´, nær í bílinn, losar sig við líkin. Síðan er fylgst með bóndanum gera sín verk, rægja rollurnar, gefa beljunum og hænunum, slátra svíni o.þ.h. Fær tvö símtöl, eitt dularfullt annað ekki, og síðan heimsókn frá lögreglumanni. Býður honum inn í kaffi og kleinur. Lögreglumaðurinn spyr hvort að hann hafi verið var við dularfullar mannaferðir, aðallega tveir ungir piltar á aldrinum 16 og 18 ára. Bóndinn neitar því. Löggan heldur áfram sinni ferð og fylgst er með honum...

Síðan er bara að bæta við karakterum, aðstæðum o.s.frv.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home