Þessi einstaklingur : dagur x.i
Hann hafði vakað langt fram eftir nóttu, dólandi í tölvunni og varla haft neina rökrétta hugmynd um hvað hann ætti að gera. Spila tölvuleiki sem hann hafði spilað áður, hanga á netinu og vafra um á sömu vefsíðunum og hann hefur gert undanfarin tvö eða þrjú ár. Allavega gera eitthvað allt annað en hann ætti að gera, það er að segja að læra, lesa eða skrifa eitthvað fyrir skólann. Heldur áfram að drolla eitthvað til klukkan að vera þrjú þar til að loksins rennur upp fyrir honum að hann verði að stöðva þessar lélegu endurtekningar, einsog slæmt sjónvarpsefni, tími til að skipta um stöð. Hann slekkur á tölvunni, lötrar inní stofu, kveikir ljósin, lítur í kring um sig, slekkur ljósin.
Þetta var orðinn einhverskonar ávani hjá honum, á leiðinni inní baðherbergi þá tekur hann örfá skref áfram og fer inní gamla herbergið sitt, áður en hann flutti og yngri systirinn flutti inní hans herbergi. Hann opnar hurðina, kveikir ljósin og gerir ekkert. Hann staulast svo inní bað, kveikir ljósin.
Hann tekur upp fjólubláa tannburstann sinn, skellir smá tannkremi og burstar tennurnar. Tannburstun er eitthvað sem hann mætti gera oftar og hætta að "gleyma" því. Í þessu tilviki þýðir að "gleyma" að "nenna ekki" enda virðist maðurinn vera afspyrnu latur, eða hefur allavega latann persónuleika. Þó hann eigi sína spretti þá á hann sér þann draum að þurfa ekki að hafa mikið fyrir lífinu, hann er latur dagdraumamaður. Þó eru tannskemmdir ekki að hrjá hann mikið, en hann mætti þó fara oftar til tannlæknis og aðra læknamenntaða einstaklinga.
Eftir að hann lýkur við að bursta, þá snýr hann sér að klósettinu, dregur út delann og léttir af sér. Að svo loknu dröslast hann fram eftir ganginum, inní eldhús og svo inní herbergið sitt. Það er smá vorkunnarsvipur á honum, en umhirðann í herberginu ekki uppá sitt besta og hann veit það.
Hann tekur af sér spjarirnar, slekkur á loftljósinu og kveikir á leslampanum. Tekur upp dálítið þykka vísindaskáldsögu og les nokkrar blaðsíður áður en hann fellur í svefn.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home