Söguhugmynd #1
- Væri gaman að gera sögu er gerist í náinni framtíð, þar sem sögusviðið er Ísland. Samsæri, þriller, Forsagan gæti verið tengd málefnum nútímans, þ.e. að stríð gegn hinu þessu, t.d. fíkniefnum og hryðjuverkum sem drógu töluverðan fjárhagslegan og umhverfislegan dilk á eftir sér. Tveim-þrem kjarnorkusprengjum hefur verið varpað á Mið-Austurlönd og borgarastyrjöld ríkir í BNA í kjölfarið á viðskiptabanni OPEC-ríkjana í kjölfarið á kjarnorkuárásinni. Tveir forsetar hafa verið myrtir.
- Vegna ýmissa þátta, umhverfislegir, fjárhagslegir, stjórnleysi og hryllingur, þá hefu flóttafólki til Íslands stóraukist og á þessum tíma búa um 20 milljón manns, langflestir á Suðurlandinu. Það ólíklega sem fylgdi með þessum stóraukna flóttamannastraumi var fjármagn, þar sem ýmsir ríkisbubbar í BNA og meginlandi Evrópu (sem var orðið Evrópusambandsríki) og víðar, töldu sig vera í töluverðri hættu. Í þessum sambandsríkjum hafa myndast öflugir fasistahópar úr öllum röðum; hægri, vinstri, kristnir, múslímar, gyðingar og af öllum kynstofnum - og stöðugar skærur eru á milli þessara hópa.
- Ísland er einnig klofið. Á suðvesturlandinu, höfuðborgarsvæðinu sem nú nær út allann Reykjanesskagann, að Akranesi og austur að Hvolsvelli, er fólkinu stjórnað með offorsi og valdi, lögregluríki. En á landsbyggðinni, sem af einhverjum ástæðum er enn töluvert strjálbýl, er tiltölulegt stjórnvaldsleysi en þó með einstaka herárásar sem skipaðar eru af lýðræðislega kosnri ríkistjórn. Alþjóðlega er ástandið á Íslandi skilgreint sem hálfgerð borgarastyrjöld, svipað og Rússland og Tsjetenía eða Ísrael og Palestína í dag, en hernaðarbröltið er svo minniháttar að landsbyggðarapakkið kippir sér lítið upp við það, þannig að það er semi-friður á milli þessara andstæðna.
Það væri kannski ágætt að byrja á smásögu.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home